Loftstokkar gerðir úr efni til að annað hvort flytja loft eða dreifa lofti. Þótt þeir hafi ekki verið mikið notaðir á Íslandi þá hefur notku þeirra verið að aukast á undanförnum árum sérstaklega vegna fjölbreyttrar notkunar á þeim.

Hvað eru efnisloftstokkar
Efnisloftstokkar eða Textílloftstokkar (jafnvel loftsokkar) eru loftræstilagnir gerð úr nokkrum tegundum af efni eða textíl. Hægt er að fá þetta í nokkrum útfærslum af formi, algengast er að þetta sé hringur, hálfhringur eða spröskjulaga. Lofstokkurinn þrýstist út þegar lofti er blásið í stokkinnn.

Helstu kostir

  • Hljóðlátt – loftið blæs út um mörg lítil göt
  • Umhverfisvænt
  • Höggþolið
  • Hægt að þrýfa
  • Hagkvæmt – ódýrara en hefbundin dreifing
  • Auðvelt í uppsetningu
  • Fjölbreytittir litir í boði

Fyrir hverja hentar þetta?
Notkun er gríðarlega fjölbreytt

  • Matvælavinnslur – Matvælavinnslur hafa notað loftsokka í áratugi á Íslandi og eru þeir þekkastir þar. Loftsokkarnir tryggja gott loftflæði á starfsmannasvæðum án þess að kæla starfsmenn of mikið með miklum blæstri eða stórum viftum
  • Íþróttahús – þar sem boltar eru á ferðinni hefur alltaf verið hætta á skemmdum á loftræstikerfum þar sem boltar og annað geta eyðilagt stokkana.
  • Kvikmyndahús og leikhús – Stór svæði þar sem þörf er á loftræstingu sem er mjög hljóðlát en það er mikið af fólki og þörf á miklu af lofti
  • Matvöruverslanir og stórverslanir – jafnt loftflæði um allt verslunarsvæðið og mun ódýrara en að leggja stóra stálstokkar
  • Apótek, lyfjaframleiðsla, hrein herbergi, rafmagnsherbergi og krístísk rými – hægt er að fá ISO class 4 vottað, með anti-static og anti-bakteríu efni.
  • Sundlaugar – fullkomið fyrir tærandi umhverfi eins og sundlaugar. Engin tæring!

Tækniupplýsingar