Undanfarin ár hefur verið mikil aukning í kröfu um neistafría blásara, oft á tíðum er flokkun slíkra blásara flókin og ekki augljós en á sama tíma mikilvægt að velja rétta blásara út frá þeim aðstæðum sem eru uppi. Hérna eru nokkrar skýringar til að aðstoða við valið á blásarum.

Upplýsingarnar eru birtar án ábyrgðar, og til upplýsinga. Mælst er með því að leita til sérfræðinga

Af hverju ATEX

  • Frá og með júlí 2003 krafðist EU með reglugerð 94/9/EG um ATEX
  • Allur búnaður eða hluar sem eru uppsetttir í umhverfi sem er með mögulega spreningu hættu, skal vera með búnað sem er neistafrír og með skýra merkingu þar að lútandi
  • Reglugerðin tekur líka á búnaði sem er ekki rafrænn
  • Áhættugreining
    Sprening getur átt sér stað ef

    • Hættuleg efni, sem geta framkallað sprengifimt andrúmsloft.
      • Eldfim efni
      • Gufur, eimur og úði frá brennanlegum vökvum
      • Ryk úr brennanlegu efni
    • Kveiku hætta á ferðinni
      • Fletir með háu hitastig
      • Neistar, logar, rafbogar, sterkir rafsegulgeislar eða
        efnahvörf
      • Stöðurafmagn
      • Flökku- og lekastraumur

Ráðstafanir:

Góð loftræsting: Ef styrkur brennanlega efnisins nær ekki að fara yfir viss mörk
(sprengimörk) verður ekki sprenging. Góð loftræsting skiptir því öllu máli. Loftræstibúnaður þarf að uppfylla skilyrði sem fylgja aðstæðum og áhættuflokkum.
Neistafrír búnaður: Ef ekki er hætta á að neistar, hár hiti, sterkir rafsegulgeislar eða
efnahvörf komist að sprengifima loftinu verður ekki sprenging.

Svæði

  • Svæði 0 – Svæði 0 er svæði þar sem sprengifimar gastegundir eru í andrúmsloftinu í langan tíma eða gerist oft.
  • Svæði 1 – Svæði 1 er svæði þar sem sprengifimar gastegundir eru líklegar til að vera til staðar öðru hverju í venjulegri starfsemi t.d. vegna bilana, viðhalds eða vegna leka
  • Svæði 2 – Svæði 2 er svæði þar sem sprengifimar gastegundir geta komið fyrir í skamman tíma.

Til samsvörunar þá eru svæði 20, 21, 22 um sambærilega viðburði, en þar sem ryk er efnið sem blandast lofti

Svæði 0 og 20, þurfa búnað úr flokki 1
Svæði 1 og 21, þurfa búnað úr flokki 2
Svæði 2 og 22, þurfa búnað úr flokki 3

Sprengflokkun

Sprengiflokkun er háð því efni sem er í umhverfinu og hefur með blossamark efnisins að að gera. Þannig er Ammoníak í flokki IIA, en vetni í flokki IIC

Hitastigsflokkun

Mesti mögulegi yfirborðshiti sem er leyfður. Í IEC 60070-0:2011 koma fram merkingar um hitast á bolinu frá T1-T6, þar sem T6 er öruggari.

Samsett merking

Úr þessu kemur þetta svo inn á Atec merkingu eins og dæmið hér fyrir neðan:

Neistafríirblásarar og Neistafríarviftur

Við bjóðum upp á úrval af neistafríum viftum frá nokkrum framleiðendum. Eins og sjá má á textanum hér fyrir ofan